10.3.09

Litla Hraun 80 ára


Sunnudaginn 8. mars var haldin afmælishátið á Litla Hrauni. Afmælisbarnið skartaði sínu fegursta þrátt fyrir norðangarra. Veisla var haldin milli klukkan 14 og 16 í íþróttahúsi Litla Hrauns og komu margir góðir gestir m.a. dómsmálaráðherra, Lögreglustjórinn í Reykjavík, Fangeslismálastjóri, fyrrum forstjórar Litla Hrauns, fyrrum starfsmenn, starfsmenn Litla Hrauns, fangelsismálastofnunar. Flutt voru ýmis erindi, séra Hreinn Hákonarson fór yfir sögu Litla Hrauns, Afstaða, félag fanga flutti ræðu og sá jafnframt um að bera fram veitingar. Veittar voru viðurkenningar þeim starfsmönnum sem hafa unnið Litla Hrauni í 20 ár eða lengur.
Klukkan 17 hófst svo skemmtun fyrir fanga, en þar komu fram m.a. Raggi Bjarna, Þorgeir Ástvaldsson, Hermann Gunnarsson og Einar Ágúst tónlistarmaður. Fangar skemmtu sér konunglega og voru til sóma í alla staði.

No comments:

Post a Comment